Agnar Agnarsson, sjálfstæður dreifingaraðili StemEnhance, segist hafa góða reynslu af efninu. Læknar eru ekki jafn vissir. Mynd: Fréttablaðið
„Það er því nauðsynlegt að neyta StemEnhance til að viðhalda heilbrigðum líkama og fyrirbyggja hugsanlega sjúkdóma, eða jafnvel að snúa þeim við til heilbrigðis,“ segir á heimasíðunni stofnfrumur.net þar sem töflur frá fyrirtækinu StemTech eru kynntar. Ekki er hægt að skilja setninguna öðruvísi en að því sé haldið fram að StemEnhance geti komið í veg fyrir eða læknað sjúkdóma. Á síðunni er einnig fullyrt að töflurnar auki framleiðslu líkamans á stofnfrumum um 25 til 30 prósent. DV leitaði eftir áliti nokkurra lækna sem allir efuðust um virkni taflnanna.
StemEnhance er enn ekki fáanlegt hér á landi en samkvæmt síðunni er hægt að kaupa vöruna í átján ríkjum heims. Fólk er hins vegar hvatt til að skrá sig á lista hjá þessum íslensku aðilum til þrýsta á að varan verði seld á Íslandi. Í þeim tilgangi er varan kynnt fyrir neytendum sem einhvers konar töfralyf, án þess þó að það orð sé nákvæmlega notað.
Agnar Agnarsson er sjálfstæður sölufulltrúi hjá StemTech en hann kynntist efninu erlendis. Í fyrstu neitaði hann í samtali við blaðamann að vera sjálfstæður dreifingaraðili taflnanna en þegar blaðamaður benti honum á gögn sem sýndu fram á annað viðurkenndi hann að dreifa efninu.
Allt um málið í DV í dag


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
