ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

65 aftökur á 40 dögum

Írökskum dómstólum gefið grænt ljós á að dæma til dauða að vild
06:00 › 14. febrúar 2012
Mannréttindasamtök lýsa yfir áhyggjum sínum af þróun mála í Írak. Fjölmargir fangar hafa verið dæmdir til dauða að undanförnu.

Mannréttindasamtök lýsa yfir áhyggjum sínum af þróun mála í Írak. Fjölmargir fangar hafa verið dæmdir til dauða að undanförnu. Mynd: Reuters

Sextíu og fimm írakskir fangar voru teknir af lífi á fyrstu fjörutíu dögum ársins. Þar af voru þrjátíu og fjórir teknir af lífi sama daginn, þann 19. janúar síðastliðinn. Tvær konur voru í þeim hópi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sem lýsa miklum áhyggjum af þróun mála í landinu. Samtökin hafa kallað eftir því að íröksk yfirvöld afnemi dauðarefsingar og endurskoði réttarkerfi landsins.

„Íröksk yfirvöld virðast hafa gefið dómstólum grænt ljós á að dæma fólk til dauða að vild,“ segir Joe Stork, deildarstjóri Human Rights Watch í Mið-Austurlöndum, í samtali við CNN.

Stork gagnrýnir harðlega hversu ógagnsætt réttarkerfi landsins er. Þannig sé ómögulegt að fá upplýsingar um hversu margir fangar séu á dauðadeild og hvers vegna þeir hlutu dauðadóm.

Talið er að tólf hundruð manns hafi verið dæmdir til dauða í Írak frá árinu 2004 en óvíst er hversu margir hafa verið teknir af lífi nú þegar. Afbrotamenn þurfa í raun ekki að fremja mjög alvarlega glæpi til að eiga yfir höfði sér dauðadóm. Þannig gera lög landsins ráð fyrir að þeir sem dæmdir eru fyrir skemmdarverk á eigum yfirvalda geti átt von á því að fá dauðadóm samkvæmt frétt CNN.

Dómsmálaráðuneyti Íraks gaf frá sér yfirlýsingu vegna málsins fyrr í þessum mánuði. Þar kom fram að íröksk yfirvöld stæðu frammi fyrir harðri baráttu við hópa hryðjuverkamanna sem hefðu gerst sekir um alvarlega glæpi, meðal annars morð á óbreyttum borgurum. Ekkert sé við dómskerfi landsins að athuga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?