ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Þjófar létu greipar sópa í nýbyggingu

Ætluðu að stela blöndunartækjum og hurðum
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:21 › 13. febrúar 2012

Þrír menn voru handteknir við Boðaþing í Kópavogi klukkan rúmlega tvö í nótt. Mennirnir voru þá að láta greipar sópa í og við nýbyggingu við götuna. Voru þeir búnir að losa blöndunartæki, rafmagnsrofa og hurðir og bera út í bíl sem þeir höfðu lagt skammt frá.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru mennirnir allt frá tvítugu og upp í 55 ára að aldri og allir góðkunningjar lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?