ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Brúðhjón rænd: Mikið af góðu fólki á Íslandi

„Landið lítur út eins og það sé úr öðrum heimi.“ segir Lynsey sem varð að hætta við brúðkaupsferð til Íslands
Atli Þór Fanndal atli@dv.is
06:00 › 13. febrúar 2012
Linsey og Ian Morris stuttu eftir brúðkaupsathöfnina, um það leiti sem innbrotsþjófarnir létu greipar sópa um íbúð þeirra.

Linsey og Ian Morris stuttu eftir brúðkaupsathöfnina, um það leiti sem innbrotsþjófarnir létu greipar sópa um íbúð þeirra. Mynd: Claire Gentry

„Innbrotið eyðilagði algjörlega fyrsta daginn okkar sem hjón,“ segir Lynsey Morris en Íslendingar hafa undanfarið kynnst sögu hennar og Ian, eiginmanns hennar, eftir að brotist var inn á heimili þeirra á meðan þau voru fjarverandi vegna eigin brúðkaups. Atvikið varð til þess að þau urðu að hætta við ferð til Íslands sem fyrirhuguð var dagana eftir brúðkaupið enda var vegabréfi Ians stolið.

„Ef okkur langaði að koma til Íslands áður, þá er það alveg ljóst að okkur langar miklu meira að koma til landsins núna. Á viðbrögðunum að dæma er augljóst að þar er mikið af góðu fólki,“ segir Lynsey um fyrirhugaða ferð til Íslands. „Við höfum séð myndir frá Íslandi og landið lítur út eins og það sé úr öðrum heimi. Eins og þetta sé önnur pláneta,“ segir Linsey aðspurð hvers vegna þau hafi valið Ísland sem áfangastað í brúðkaupsferð sinni.

DV fjallaði fyrst íslenskra fjölmiðla um málið en saga hjónanna snerti við mörgum lesendum. Fjöldi manns tjáðu sig í athugasemdakerfi DV.is og lýstu stuðningi og samúð með hjónunum. Svo fór að flugfélagið Iceland Express hafði samband við hjónin og gaf þeim frítt flug til landsins. Fjöldi aðila hafa í kjölfarið heitið gjöfum og aðstoða til handa hjónunum þegar þau koma til landsins.

Lynsey Morris er í ítarlegu viðtali í DV sem kemur út í dag. Þar ræðir hún um áhrif innbrotsins á fjölskyldulífið, brúðkaupið og væntanlega ferð þeirra til Íslands.

Sjá einnig:

Grét af gleði þegar Iceland Express bauð þeim í brúðkaupsferð

Hættu við brúðkaupsferð til Íslands eftir rán



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?