Lilja Mósesdóttir, formaður hins nýstofnaða flokks, Samstöðu, segir það forgangsmál flokksins að leiðrétta hækkun á höfuðstól lána þannig að lán lækki um tæp 20 prósent um leið og verðtryggingin verði afnumin. Lilja situr nú fyrir svörum á Beinni línu DV.
„Það eru margar leiðir til að fjármagna leiðréttingu lána. Leiðréttingin mun kosta um 200 milljarða umfram það sem gert hefur verið. Hægt væri að skatta hagnað bankanna sem eru núna um 170 millj.,“ segir Lilja aðspurð hvernig Samstaða hyggist fjármagna lækkun höfuðstólsins.
Lilja er einnig spurð út í hver skoðanaágreingur Samstöðu og VG sé, ef afdráttarlaus niðurfelling á lánum heimilanna er frátalin
„Vandamál VG er að forystan fer ekki eftir stefnu flokksins og því eru aðgerðir í litlu samhengi við kosningaloforðin. Margt gott í stefnu VG en flokkurinn hefur ekki trúverðugleika,“ svarar Lilja.
Lesendur DV geta spurt Lilju milliliðalaust á Beinni línu.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
