ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Ómerktir lögreglumenn sinna eftirliti á skemmtistöðum borgarinnar

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
08:47 › 12. febrúar 2012

Eitt af hlutverkum lögreglu er að hafa eftirlit með starfsemi veitingahúsa, segir í tilkynningu frá lögreglu en þar segir einnig að ómerktir lögreglumenn sinni slíku eftirliti og höfðu þeir afskipti af aðilum með fíkniefni eða aðilum sem ekki höfðu aldur til að vera á skemmtistöðunum.
Segir í tilkynningu:

„Ómerktir lögreglumenn voru að kanna með ástandið á skemmtistöðum borgarinnar og gestum þeirra nú um helgina líkt og gert er reglulega. Nokkrir aðilar sem þeir höfðu afskipti af höfðu fíknefni í fórum sínum og einhverjir voru ekki með aldur til veru á stöðunum en með skilríki sem sögðu til um annað. Í þeim tilfellum þegar einstaklingur hefur ekki náð 18 ára aldri er haft samband við foreldra sem geta heimt börn sín á lögreglustöðina og eru slík brot tilkynnt til barnaverndarnefndar.

Ásamt þessum skyldum hafa lögreglumenn augu með aðilum sem kunna að vera sölumenn fíkniefna á og við veitingahúsin og nú sem áður voru menn stöðvaðir við þessa iðju og var einn með nokkuð af sölueiningum innanklæða. Í kjölfarið gerðu lögreglumennirnir húsleit á heimili viðkomandi og fundu talsvert magn kannabishefna, haldlagði fé sem ætlað að sé ágóði sölu á þeim ásamt mælitækjum og pökkunarbúnaði.

Mælanleg fækkun hefur orðið á ofbeldisbrotum í kringum skemmtanir um helgar í miðborginni miðað við árin á undan og má ætla að virkt eftirlit lögreglu með veitingahúsum og gestum eigi þar sinn þátt. Þá er gott samstarf við starfsfólk og dyraverði veitingahúsanna.

Það er tilfinning lögreglumanna er sinna þessum málaflokki og dyravarða að þetta eftirlit hafi fælt sölumenn fíkniefna í einhverjum mæli frá þessum stöðum.

Gerðar eru ríkar kröfur til þeirra er starfa við dyravörslu enda er hlutverk þeirra margþætt. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út dyravarðaskírteini til þeirra er standast mat á hæfi til þeirra starfa að undangenginni umsókn.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?