ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Ofsóttur eftir skrif á Twitter

Hamza Kashgari efaðist um Múhammeð spámann
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:20 › 12. febrúar 2012

Íslamskir öfgamenn krefjast þess að ungur Sádi-Arabi verði tekinn af lífi fyrir færslu á Twitter-síðu sinni sem vakti hörð viðbrögð í Sádi Arabíu. Hamza Kashgari er 23 ára múslimi sem virðist efast um trú sína og þorði að tala um það opinberlega. Á Twitter skrifaði hann um Múhammeð spámann. „Ég hef alltaf elskað uppreisnarmanninn í þér. Þú hefur alltaf veitt mér innblástur. Mér líkar hins vegar ekki geislabaugurinn og heilagleikinn í kringum þig. Ég mun ekki biðja fyrir þér. Ég mun ekki kyssa hönd þína. Hins vegar mun ég taka í höndina á þér eins og jafningjar gera. Ég mun brosa til þín þegar þú brosir til mín. Ég mun ekki tala við þig sem vin minn lengur.“

Allt ætlaði um kolla að keyra þegar þegar Kashgari birti færsluna á Twitter. Hann fékk meira en 30.000 svör á einum degi. Mörg þeirra komu frá ævareiðum samlöndum hans sem kröfðust þess að hann yrði líflátinn hið snarasta. Kashgari hefur reyndar eytt út reikningi sínum á Twitter og beðist afsökunar. Það dugði þó skammt til þess að lægja óánægjuöldurnar. Heimilisfang hans var birt á Youtube og æstur múgur hefur leitað hans og haldið til fyrir utan moskuna hans.

Einn frægasti klerkur Sádi-Arabíu hefur krafist þess að réttað verði yfir Kashgari fyrir guðlast, en við því liggur dauðarefsing. Þegur hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur honum í heimalandinu, en hann flúði land vegna þess að hann óttast um líf sitt. „Ég er hræddur og ég veit ekkert hvert ég á að fara,“ sagði Kashgari.

Bloggari í Sádi-Arabíu segir að viðbrögðin við færslunni hafi verið ótrúleg. Ungi maðurinn hafi vissulega farið yfir strikið en málið minni á mál Salmans Rushdie sem skrifaði bókina Söngvar Satans, sem gerði að verkum að Íransstjórn gaf út morðtilskipun á hendur honum. Rushdie hefur að mestu farið huldu höfði undanfarin ár.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?