ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Meirihlutinn vill Ólaf aftur í framboð

Mestur stuðningur meðal kjósenda Framsóknarflokksins
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
20:02 › 12. febrúar 2012
Samkvæmt könnuninni er rúmlega helmingur þjóðarinnar þeirrar skoðunar að Ólafur Ragnar eigi að bjóða sig fram til setu fimmta kjörtímabilið.

Samkvæmt könnuninni er rúmlega helmingur þjóðarinnar þeirrar skoðunar að Ólafur Ragnar eigi að bjóða sig fram til setu fimmta kjörtímabilið. Mynd Sigtryggur Ari Jóhannsson

Meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson forseti gefi aftur kost á sér í forsetakosningum sem fram fara síðar á árinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunnar sem gerð var fyrir Stöð 2 og Fréttablaðið. Ólafur Ragnar hefur sjálfur gefið í skyn að hann ætli sér ekki að fara aftur í framboð en hann er nú að ljúka sínu fjórða kjörtímabili í embætti forseta. Hann hefur þó ekki útilokað neitt.

Í könnuninni sögðust 54 prósent vilja að Ólafur Ragnar myndi aftur gefa kost á sér í embættið en 46 prósent voru þeirrar skoðunar að forsetinn ætti að draga sig í hlé að loknu kjörtímabilinu. Lítill munur er á afstöðu kynjanna en Ólafur virðist eiga fleiri stuðningsmenn á landsbyggðinni. Úrtakið í könnunni var átta hundruð manns og voru um níutíu prósent sem tóku afstöðu til spurningarinnar.

Talsverður munur er á afstöðu fólks til spurningarinnar eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Flestir stuðningsmenn þess að Ólafur bjóði sig aftur fram koma úr röðum stuðningsmanna Framsóknarflokksins. Af þeim sem sögðust myndu kjósa flokkinn voru 63 prósent sem studdu Ólaf. Aðeins 32 prósent af þeim sem sögðust styðja Samfylkinguna sögðust styðja Ólaf til að bjóða sig aftur fram.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?