Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru fjörtíu til sjötíu prósent allra morða á konum í heiminum framin af mökum þeirra og oft eftir ofbeldissamband. Hins vegar er aðeins lítill hluti þeirra karla sem eru myrtir drepnir af maka þeirra, og þegar það gerist er það yfirleitt vegna þess að konurnar eru að verjast eða rísa upp gegn ofbeldisfullum mönnum.
Líkt og DV greindi frá í byrjun vikunnar lést kona í Hafnarfirði þann 6. febrúar síðastliðinn. Ungur maður gaf sig fram við lögregluna og er grunaður um að hafa verið valdur að andláti hennar. Málið hefur vakið óhug á meðal þjóðarinnar en á síðasta ári var Axel Jónsson dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun eftir að hann banaði barnsmóður sinni í Heiðmörk. Þá var Gunnar Rúnar Sigþórsson dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að bana sambýlismanni stúlku sem hann var haldinn þráhyggju gagnvart. Þriðji maðurinn, Ólafur Donald Helgason, var einnig færður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hefði orðið valdur að dauða eiginkonu sinnar, Hallgerðar Valsdóttur. Áverkar á Hallgerði og aðkoman í íbúð þeirra þóttu benda til að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Ólafur Donald var saklaus af þessum ásökunum en harmurinn var mikill og hann lést skömmu síðar.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira
Tengdar fréttir
Meira »

















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
