ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Lilja Mósesdóttir á Beinni línu í dag

Lesendur DV.is spyrja þingmanninn milliliðalaust
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:12 › 12. febrúar 2012

Þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir verður á Beinni línu á DV.is í dag klukkan þrjú. Lilja sagði sig úr Vinstri grænum á síðasta ári og er nú búinn að stofna nýjan flokk sem nefnist Samstaða. Þar er varaformaðurinn veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson en sjálf veitir Lilja flokknum formennsku sem hún segir hvort vera hægri né vinstri flokkur.

Lesendum gefst tækifæri á að spyrja Lilju spurninga milliliðalaust á Beinni línu klukkan þrjú á morgun.

Athugið að slóðin á Beinu línuna verður www.dv.is/beinlina
Bein lína var um árabil þekkt fyrirbæri á vegum DV. Þá gátu lesendur hringt inn og borið spurningu fyrir ráðamenn eða aðra þekkta einstaklinga sem í deiglunni voru hverju sinni. Með Beinni línu á DV.is er markmiðið að færa þá hugmynd til nútímans og gefa lesendum kost á því að beina áleitnum spurningum til þeirra sem í öndvegi eru. DV hvetur lesendur til að sýna kurteisi í orðavali og spyrja hnitmiðaðra spurninga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?