„Þetta er gífurlega svekkjandi,“ segir tónlistarmaður Agnar Birgir Gunnarsson úr hljómsveitinni Bláum Ópal sem hafnaði í öðru sæti í Söngvakeppi Sjónvarpsins í gærkvöldi með lagið Stattu Upp. „Við erum samt mjög ánægðir með árangurinn sem við náðum en það er leiðinlegt að þjóðin fái ekki að hafa sitt að segja.“
Greint var frá því í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins að strákarnir sigruðu símakosningu söngvakeppninnar og munaði um 700 atkvæðum á þeim og sigurlaginu. Dómnefnd á vegum RÚV vegur hinsvegar jafn mikið og símakosningin gerir í heild sinni og var það í raun hún sem réð úrslitum í keppninni.
Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Kristmundur Axel Kristmundsson auk Agnars Birgis. Salurinn tók vel á móti þeim í Hörpu þegar þeir fluttu lagið og nú liggur ljóst fyrir að það gerðu áhorfendur heima í stofu líka.
„Við töluðum saman lauslega í gær en við ætlum að hittast allur hópurinn seinna í vikunni,“ segir Agnar Birgir. Strákarnir og höfundar lagsins, Ingólfur Þórarinsson og Axel Árnason, fengu að vita af úrslitum símakosningarinnar í gærkvöldi eftir keppnina. „Það er leiðinlegt að sjö manna dómnefnd fái að ráða meiru en 700 manns,“ segir Agnar.
Sjá einnig:
Blár Ópal burstaði símakosninguna


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
