Gríska þingið samþykkti nú í kvöld gríðarlega umdeilda niðurskurðartillögu. Samþykki tillögunnar var forsenda þess að frekari aðstoð fengist frá Evrópusambandinu og Alþjóðgjaldeyrissjóðnum. Mótmælt hefur verið víðsvegar um landið vegna málsins.
Tillagan eru vægast sagt umdeild og hefur verið kveikt í minnst tíu byggingum í mótmælaaðgerðum við niðurskurðinn. Um er að ræða einn mesta niðurskurð sem gríska ríkið hefur ráðist í. Gert er ráð fyrir því að ríkið skeri niður um 3,3 milljarða evra, jafnvirði 535 milljarða króna.
Niðurskurðurinn felur í sér fjöldauppsagnir hjá hinu opinbera, lækkun lágmarkslauna og skerðingu á lífeyri. Umræður áttu sér stað í þinginu í allan dag um málið en gengið var til atkvæða um tillöguna nú undir kvöld.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
