Ítölsk stjórnvöld hafa hafist handa við að dæla olíunni úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði með hörmulegum afleiðingum fyrr á árinu. BBC greinir frá því nú í kvöld að fulltrúar frá hollenska fyrirtækinu Smit séu komnir til Ítalíu en þeir munu hafa yfirumsjón með því að koma olíunni úr skipinu.
Talið er að verkið taki allt í allt 28 daga en talsvert mikið magn af olíu er í skipinu. Dregist hefur að ná olíunni úr skipinu vegna björgunaraðgerða á farþegum skipsins og slæmum veðurskilyrðum. Nú er björgunaraðgerðunum hinsvegar lokið og veður orðið sæmilegt.
„Við reiknum með góðu veðri næstu fimm daga og við ætlum að vinna allan sólarhringinn við að pumpa olíunni út,“ sagði Bart Huizing, starfsmaður Smit, í samtali við AP. „Vonandi náum við mestu út fyrir lok vikunnar.“ Um fimmtán olíutankar í skipinu geyma nærri allt eldsneyti um borð segir í frétt AP.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
