ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Blár Ópal sigraði símakosninguna

Dómnefndin setti þá í þriðja sæti
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
18:22 › 12. febrúar 2012
Kristmundur Axel var einn af strákunum í Bláum Ópal.

Kristmundur Axel var einn af strákunum í Bláum Ópal. Mynd Pressphotos.biz

Lagið Stattu upp fékk flest atkvæði í símakosningu í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Alls munaði 700 atkvæðum á laginu, sem flutt var af strákabandinu Bláum Ópal, og sigurlagi keppninnar, Mundu eftir mér, sem flutt var af Gretu Salóme og Jónsa. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Ástæðan fyrir því að Blár Ópal stóð samt ekki uppi sem sigurvegari var að atkvæði í símakosningunni giltu til jafns við atkvæði sjö manna dómnefndar á vegum RÚV. Lagið hafnaði ekki í nema þriðja sæti að mati dómnefndarinnar og féll því niður í annað sæti þegar öll atkvæði voru talin saman.

Um það bil áttatíu þúsund atkvæði voru greidd í símakosningu keppninnar. Atkvæði efstu þriggja laganna skiptust þannig að Stattu upp fékk 19.366 atkvæði, Mundu eftir mér fékk 18.649 og Hugarró var með 16.643 atkvæði. Dómnefndin setti hinsvegar Mundu eftir mér í fyrsta sætið, Hugarró í annað sætið og Stattu upp í það þriðja.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?