Lögreglan á í fullu fangi með að hafa stjórn á mótmælendum sem virðast ráða ríkjum á götum úti í Aþenu. Mynd Reuters
Eldar loga í höfuðborg Grikklands og mótmælendur virðast ráða ríkjum á götum úti. Greidd verða atkvæði í gríska þinginu um vægast sagt umdeildar niðurskurðartillögur í kvöld. Niðurskurðurinn er ein af forsendunum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hefur sett fyrir frekari neyðaraðstoð við veikburða grískan efnahag. Mótmælendur eru hinsvegar harðlega andsnúnir þessum tillögum.
Kveikt hefur verið í minnst tíu byggingu í kvöld, kvikmyndahúsi, banka, verslunum og veitingahúsum, en engar fréttir hafa borist um manfall vegna mótmælanna. Tugi mótmælenda hafa hinsvegar særst í átökum við lögreglu sem hefur gert árangurslausar tilraunir til að hafa stjórn á mótmælendunum. Þá hafa einnig einhver fjöldi lögreglumanna slasast.
Lögreglan hefur beitt táragasi á mótmælendur sem hafa svarað með því að kasta grjóti og bensínsprengjum í átt að lögreglunni.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
