Eigandi News International, Rupert Murdoch, segist ætla að halda áfram útgáfu breska dagblaðsins The Sun þrátt fyrir að fimm starfsmenn þess hafi verið handteknir.
Starfsmennirnir voru úr hópi átta einstaklinga sem voru handteknir vegna meintra mútugreiðslna til lögreglu og opinbera starfsmanna.
Ritstjóri dagblaðsins, Dominic Mohan, sagðist vera brugðið vegna handtökunnar en hét því að halda áfram að stýra blaðinu, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC.
Breska ríkisútvarpið segir yfirmann ljósmyndadeildar blaðsins, John Edwards, fréttastjórann John Kay, fréttamennirnir Nick Parker og John Sturgis og aðstoðarritstjórinn Geoff Webster hafa verið handtekna.
Tom Mockridge, stjórnandi News International, segir The Sun horfa fram á sína mestu áskorun vegna handtökunnar.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
