ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Spáir hruni á Íslandi árið 2016

Stefnir í ógöngur vegna hagstjórnar á Íslandi að sögn hagfræðings
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:18 › 11. febrúar 2012

„Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands,“ skrifar hagfræðingurinn Heiðar Már Guðjónsson í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu. Greinin ber yfirskriftina „Hrunið 2016“ en í henni spáir Heiðar Már því að AGS komi aftur til Íslands vegna þess að íslenska ríkið gat ekki staðið við skuldbindingar sínar í erlendri mynt og bankakerfið aftur komið í ógöngur eftir snarpa gengisfellingu og brostna eignabólu eins og í fyrra hruninu árið 2008.

Hann lýsir í greininni mögulegum aðstæðum sem gætu skapast á Íslandi vegna núverandi hagstjórnar á Íslandi. Í dæminu sem hann leggur upp með í greininni segir hann AGS koma aftur árið 2016 og afnema gjaldeyrishöftin á Íslandi sem skapað höfðu eignabólu. „Og sagði það fullreynt með að Ísland hefði forræði yfir sínum peningamálum,“ skrifar Heiðar.

Hann segir það vera óskhyggju að innganga í Evrópusambandið muni bjarga Íslendingum. „Það er því miður óskhyggja að treysta á að innganga í Evrópusambandið bjargi Íslendingum. Óháð þeirri umsókn verður að breyta frá rangri stefnu er getur enn á ný byggt upp ójafnvægi sem á endanum leiðir til skelfilegra afleiðinga fyrir hagkerfið eins og við höfum því miður áður reynt,“ skrifar Heiðar.
Í viðtali við Fréttatímann árið 2010 sagðist Heiðar Már vera kominn með áhugsama aðila sem vildu fjármagna lagningu sæstrengs fyrir Landsvirkjun til að flytja orku til meginlandsins, en verkefnið var að hans sögn upp á 450 milljarða.

Þess ber að geta að Heiðar Már stefndi ritstjórum og blaðamanni DV vegna skrifa um gjaldeyrisviðskipti hans fyrir hrun. Heiðar tapaði málinu í héraðsdómi en hefur áfrýjað því til Hæstaréttar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?