„Hvort sem það verður bréf eða bara uppsögn þá býst ég allt eins við því,“ segir Snorri Óskarsson, betur þekktur sem Snorri í Betel. Hann hefur verið boðaður á fund skólamálayfirvalda á Akureyri á mánudag, vegna skrifa sinna á bloggsíðu sína, þar sem hann segir meðal annars að samkynhneigð sé synd. Mikil reiði er meðal foreldra á Akureyri, en Snorri er kennari í Brekkuskóla þar í bænum. Snorri segist vera mjög ósáttur við meðferð Akureyrarbæjar á málinu og hefur leitað stuðnings Kennarasambands Íslands. Hann telur að vegið sé að tjáningarfrelsi sínu verði honum sagt upp.
„Þeir segja að þetta sé yfirstandandi áminningarferli. Það þýðir uppsögn í aðsigi,“ segir Snorri. Snorri segist hvergi banginn. „Mér líður bara vel, ég er ekkert hræddur við þetta. Mér líður ekkert þannig að nú séu öll sund lokuð. Það er líf eftir sextugt og það er hægt að lifa góðu lífi þó menn séu ekki kennarar,“ segir hann.
Undrast vinnubrögð
„Ég er rosalega undrandi að Akureyrarbær skuli vera með svona vinnubrögð, svo ég tali nú ekki um suma fulltrúa í skólanefnd með svona orðaleppa sem þeir hafa leyft sér að vera með. Ég held að Akureyrarbær fái svartan blett á sig. Þeir eru að vega að bæði trúfrelsi og tjáningarfrelsinu. Það er ekki gott fyrir skólabæ að auglýsa það þannig að ef þú ert í skólabænum þá máttu ekki blogga,“ segir Snorri. „Það er hræðilegt.“
Snorri hefur verið í samstarfi með Kennarasambandinu en hefur enga afstöðu tekið til þess hvort hann sæki rétt sinn verði honum sagt upp. Hann hefur unnið málið í samstarfi við lögfræðing Kennarasambandsins.
Hélt að þetta yrði unnið faglega
„Allt sem kemur svona í ljósið það hjálpar öllum. Menn taka afstöðu og sjá hvernig málið vex og þróast. Þetta er bara mjög gott. Ég hefði verið óánægður með það ef þetta væri í leyndum,“ segir Snorri. Hann vissi ekki af umfjöllun Akureyrarblaðsins, en á fimmtudag greindi það frá málinu og sagðist hafa heimildir fyrri því að skólanefndarfulltrúar færu fram á uppsögn Snorra. „Ég hélt að þetta væri í því ferli að við ætluðum að vinna þetta í kyrrð og ró og vinna þetta á faglegum grundvelli. En þar sem þetta kom í Akureyrarblaðið þá er mér frjálst að tjá mig eins og aðrir gera.“
Segir unglinga leita ráða hjá sér
Í viðtali við Vísir.is í gær segir Snorri að ef að unglingur myndi leita til hans og segjast vera samkynhneigður myndi Snorri reyna að ræða við hann. Blaðamaður spurði Snorra hvað hann ætti við og segir Snorri gera ráð fyrir því að unglingurinn væri að leita til sín þar sem hann treysti honum. „Þegar maður ræðir svona viðkvæm mál þá stígur maður varlega til jarðar. Maður vill fyrst vita hvernig líðanin er og af hverju hann vill tala við mig. Hvers vegna leitar hann til mín?,“ segir Snorri. Hann segir að ef slíkt samtal kæmi upp væri það ekki hans að reyna að breyta tilfinningum ungmennisins heldur til þess að hlusta og reyna að aðstoða það. Hann segir unglinga hafa leitað til sín vegna ýmissa mála, en enginn vegna samkynhneigðar. „Þau leita til mín vegna þess að þau þekkja mig og treysta mér,“ segir Snorri.
Foreldri segir málflutning ógeðfeldan
DV ræddi í gær við Loga Má Einarsson, foreldra í Brekkuskóla og skólanefndarfulltrúa. Hann segir málflutning Snorra vera ógeðslegan og ekki samræmast starfi kennara. Hann segir ekki vegið að tjáningarfrelsi Snorra. „Mér finnst þetta bara fráleitt. Mér finnst þetta ekki samrýmast störfum barnaskólakennara að dunda sér við það um kvöldin og um helgar að skrifa níð um ákveðna þjóðfélagshópa sem eru varðir í stjórnarskrá. Mér finnst það sérstaklega alvarlegt þar sem kannanir sína að unglingar, sérstaklega unglingar sem eru að uppgötva samkynhneigð sína, að þeir eru í mjög mikilli hættu og búa við miklu meira óöryggi en aðrir,“ segir Logi, „þetta er fyrst og fremst ógeðfellt.“
Logi segir hinsvegar að börn og unglingar viti að þegar kennari yfirgefi skólann verði hann ekki að annarri manneskju. „Þau hafa aðgang að tölvum og hlusta á fréttir og skoða fjölmiðla. Þau átta sig á því að kennari sem labbar út af skólalóð tekur ekki á sig nýjan ham. Þetta smitar,“ segir hann. Varðandi tjáningarfrelsi Snorra segir Logi að tjáningarfrelsinu séu settar skorður. „Tjáningarfrelsið, það má aldrei skerða rétt annarra,“ segir Logi.
Tengdar fréttir
Foreldrar sagði æfir vegna skrifa Snorra í Betel
Snorri í Betel: „Ég met þetta þannig að Biblían sé að segja satt“
„Þetta er fyrst og fremst ógeðfellt“


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
