ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Sjötugur maður á gjörgæslu eftir árás ungs manns

Uppgjör á Þórshöfn vegna persónulegra mála
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:21 › 11. febrúar 2012

Karlmaður á þrítugsaldri braust inn á heimili karlmanns á sjötugsaldri í Þórshöfn í nótt og misþyrmdi honum að sögn lögreglunnar á Húsavík. Í samtali við DV.is segir lögreglan á Húsavík árásarmanninn hafa verið á vettvangi þegar lögreglu bar að garði heima hjá fórnarlambinu.

Fórnarlambið liggur nú þungt haldið á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri. Maðurinn var lemstraður og skorinn eftir árásina og með höfuðáverka. Lögregla segir árásarmanninn hafa verið drukkinn þegar árásin átti sér stað. Lögreglan segir að um einskonar uppgjör hafa verið að ræða vegna persónulegra mála en vildi ekki gefa ítarlegri upplýsingar þegar leitað var eftir þeim.

Málið telst upplýst og er ársármaðurinn laus úr haldi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?