Jónsi og Gréta Salóme flytja lagið hinnar síðarnefndu Mundu eftir mér sem mun verða framlag Íslendinga í Eurovision-keppninni í Bakú í Aserbaídsjan í vor.
Lagið „Mundu eftir mér“ eftir Gretu Salóme verður framlag Íslendinga í Eurovision þetta árið. Lagið vann Söngvakeppni Sjónvarpsins en úrslit keppninnar fóru fram í tónlistarhúsinu Hörpu. Lagið Mundu eftir mér var flutt af Gretu og Jóni Jósep Snæbjörnssyni.
Í öðru sæti hafnaði lagið Stattu upp með Bláum Ópal en lagið er samið af Ingó Veðurguð og Axel Árnasyni.
„Takk ég hef ekkert annað að segja. Bara takk fyrir mig,“ sagði Greta þegar Páll Óskar spurði hana hvort hún vildi segja eitthvað við sjónvarpsáhorfendur. Greta var afar glöð en þegar úrslitin voru kynnt og felldi hún nokkur gleðitár.
Sjö lög kepptu til úrslita í kvöld en kynnar úrslitakvöldsins voru söngvarinn Páll Óskar Hjálmtýsson og Brynja Þorgeirsdóttir.
Mundu eftir mér flutt af Gretu Salóme og Jónsa
Stattu upp flutt af Bláum Ópal
Hugarró flutt af Magna Ásgeirssyni
Stund með þér flutt af Rósu Birgittu Ísfeld
Hjartað brennur flutt af Regínu Ósk
Aldrei sleppir mér flutt af Heiðu Ólafsdóttur og Guðrúnu Árný
Hey flutt af Simba og Hrútspungunum


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
