ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Líkkistuskortur á hamfarasvæðum

Tuga enn saknað eftir öflugan jarðskjálfta á Filippseyjum

Líkbíll í vanda. Hinn öflugi jarðskjálfti gjöreyðilagði vegakerfi í La Libertad. Hér má sjá magnaða mynd af bifreið sem reynir að þræða rústir vegar til að flytja lík. Myndir: Reuters

Hermenn og björgunarsveitarfólk hefur leitað eftirlifenda í aurskriðum sem féllu. 71 er enn saknað

Eins og sjá má kubbuðust brýrnar á Negros Oriental bara í sundur.

Mikil neyð. Þúsundir neyddust til að yfirgefa heimili sín og annar eins fjöldi missti heimili sín.

Íbúi rótar í rústunum í leit að eigum sínum.

Hér má sjá forsetann Aquino skoða stærðarinnar sprungu.

Það er engu líkara en að vegirnir séu gerðir úr gleri. Fóru hreinlega í mola.

00:30 › 11. febrúar 2012
  • Hermenn og björgunarsveitarfólk hefur leitað eftirlifenda í aurskriðum sem féllu. 71 er enn saknað

    Hermenn og björgunarsveitarfólk hefur leitað eftirlifenda í aurskriðum sem féllu. 71 er enn saknaðMyndir: Reuters

  • Eins og sjá má kubbuðust brýrnar á Negros Oriental bara í sundur.

    Eins og sjá má kubbuðust brýrnar á Negros Oriental bara í sundur. Myndir: Reuters

Fara í myndagallerý →

Stjórnvöld á Filippseyjum eru ekki vongóð um að björgunarsveitum og hermönnum takist að finna fleiri eftirlifendur í rústum borga og bæja eftir að öflugur jarðskjálfti upp á 6,9 varð í Negros-héraði á mánudag. Nær þrjátíu lík hafa fundist en á áttunda tug er enn saknað. Flestir þeirra sem saknað er eru grafnir í skriðuhaugum sem féllu í kjölfar skjálftans.

Illa byggðir vegir
Benigno Aquino, forseti Filippseyja, heimsótti hamfarasvæðið á miðvikudag og var sleginn vegna eyðileggingarinnar. Hann fyrirskipaði að umsvifalaust skyldu hjáleiðir byggðar þar sem mikilvægar samgönguæðar fóru í sundur og gagnrýndi harðlega ömurlega illa byggða vegi á svæðinu. Auk þess sem fjölmargir vegir fóru í rúst eins og sjá má meðfylgjandi myndum, skemmdust ellefu brýr í Negros Oriental, þar af þrjár algjörlega.

Vantar líkkistur
Jarðfræðingar hafa viðurkennt að hafa ekki vitað af því neðansjávarmisgengi sem jarðskjálftinn stóri átti upptök sín í og varð til þess að grjóthnullungar, tré og annað brak féll með gríðarlegum þunga í skriðum á tvær borgir sem verst urðu úti, Guihulngan og La Libertad.

Bæjarstjórinn í Guihulngan hefur látið hafa eftir sér, í ljósi þess að enn er á þriðja tug einstaklinga saknað þar, að yfirvöld standi frammi fyrir þeim raunveruleika að skortur verði á líkkistum fyrir fórnarlömb hamfaranna.

Filippseyjar eru staðsettar í hinum svokallaða „Eldhring“ Kyrrahafsins þar sem öflugir jarðskjálftar og eldgos eru tíð. Mannfall er iðulega mjög mikið og skemmdir miklar þegar skjálftar verða á hinum fátæku Filippseyjum þar sem mikið erum illa byggð hús og byggingar sem standast engar reglugerðir. Árið 1990 létust nærri tvö þúsund manns í risaskjálfta sem mældist 7,7 stig.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?