Morris-hjónin. Fá brúðkaupsferðina til Íslands í boði Iceland Express og munu hafa nóg fyrir stafni þegar hingað verður komið ef marka má tilboðin sem berast.
„Við Ian trúum varla þessum ótrúlega stuðningi sem við höfum fengið frá vinum, fjölskyldu, Iceland Express og almenningi á Íslandi,“ segir hin breska Lynsey Morris í þakkarskilboðum á Facebook-síðu Iceland Express. Eins og Dv.is greindi fyrst frá urðu Lynsey og nýbakaður eiginmaður hennar Ian að hætta við brúðkaupsferð sína til Íslands eftir að brotist var inn á heimili þeirra, daginn eftir brúðkaup þeirra. Innbrotsþjófarnir létu greipar sópa og stálu meðal annars trúlofunarhringnum sem Ian gaf Lynsey.
Þau áttu að auki bókað flug með Iceland Express í brúðkaupsferðina en ekkert varð af henni þar sem miðarnir munu hafa horfið líka. Iceland Express brást hins vegar skjótt við, endurgreiddi hjónunum flugmiðana og bauð þeim nýja að sögn Heimis Más Péturssonar upplýsingafulltrúa félagsins.
Góðhjartaðir Íslendingar vilja aðstoða
Fréttirnar af hinum óheppnu brúðhjónum hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi. Bæði í athugasemdakerfi DV.is og á Facebook-síðu Iceland Express hefur tilboðum fyrir hjónin rignt inn. Allir vilja gera Íslandsdvöl hjónanna sem eftirminnilegasta og er þeim boðið allt frá ókeypis gistingu til margvíslegrar afþreyingar.
Jón Ragnar Björnsson, eigandi Gistiheimilis Nonna á Hellu, býður þeim í athugasemdakerfi DV að gista fría nótt hjá sér á ferðalagi þeirra um landið. Fleiri sambærileg tilboð hafa borist. Þá hefur þeim verið boðið í ekta heimalagaðan íslenskan mat hjá góðhjartaðri konu, önnur stingur upp á að Eyjamenn bjóði þeim í óvissuferð þangað þar sem bakari skaffi þeim brúðartertu og þau fái kaffi með á dvöl sinni þar. Þá hefur tilboð um hvalaskoðun á Húsvík frá Norðursiglingu borist.
Iceland Express heldur utan um þessi tilboð og ætla forsvarsmenn félagsins að koma þeim til skila.
Hjónin þakklát og djúpt snortin
Hjónin eru afar þakklát og djúpt snortin yfir stuðningnum ef marka má skilaboð þeirra á áðurnefndri Facebook-síðu þar sem þau skilja bæði eftir skilaboð.
Ian Morris segir:
„Við viljum koma á framfæri þakklæti okkar til Iceland Express fyrir gjafmildi þeirra og til þeirra fjölmörgu sem hafa stutt okkur á þessum erfiðu tímum. Við getum ekki beðið eftir að heimsækja Íslands sem fyrst. Takk, öllsömul,“ skrifar Ian og eiginkona hans tekur í sama streng í skilaboðum þar fyrir neðan.
Sjá einnig:
Grét af gleði þegar Iceland Express bauð þeim í brúðkaupsferð
Hættu við brúðkaupsferð til Íslands eftir rán


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
