ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Milljarða viðskipti Pálma og Glitnis afgreidd símleiðis

Höfðu ekki heimild til að skuldbinda Fons
20:30 › 10. febrúar 2012
Pálmi Haraldsson. Dómurinn í málinu er enn eitt dæmið sem sýnir að hann hafi átt í óeðlilegum viðskiptum við Glitni á árunum fyrir hrunið.

Pálmi Haraldsson. Dómurinn í málinu er enn eitt dæmið sem sýnir að hann hafi átt í óeðlilegum viðskiptum við Glitni á árunum fyrir hrunið. Mynd: DV

Átta milljarða króna viðskipti eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, Fons, við Glitni árið 2008 voru afgreidd án löglegrar heimildar með tölvupóstum og í símtölum hans eða fjármálastjóra Fons, Guðnýjar Reimarsdóttur, við starfsmenn bankans. Um var að ræða afleiðusamninga um framvirk hlutabréfaviðskipti sem Fons gerði við Glitni upp á samtals umrædda upphæð. Engar undirskriftir af þeirra hálfu lágu fyrir sem staðfestu viðskiptin. Afleiðusamningarnir voru framlengdir sjö sinnum með þessum hætti á árinu 2008.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að því með dómi að hvorki Pálmi Haraldsson né Guðný hafi haft heimild til að skuldbinda félagið með þessum hætti þar sem ekki liggi fyrir að stjórn félagsins hafi veitt þeim heimild til þess. Glitnir höfðaði mál á hendur þrotabúi Fons þar sem bankinn krafðist þess að kröfur hans í bú Fons vegna samninganna yrðu viðurkenndar sem almennar kröfur í bú Fons.

Nánar um málið í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér á vefnum með því að skrá sig inn og smella á Meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?