ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Lilja Mósesdóttir: „Góður skammtur af C-vítamíni“

Gaman að sjá uppskeru mikillar vinnu
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
08:44 › 10. febrúar 2012

„Þegar ég sá þetta var eins og ég hefði fengið góðan skammt af C-vítamíni,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður, alsæl með niðurstöðu nýjustu skoðunarkönnunar Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Í henni kemur fram að ef gengið væri til kosninga nú fengi nýr flokkur Lilju, Samstaða, liðlega tuttugu prósent fylgi.

„Það náði fram brosi fyrir klukkan átta,“ segir Lilja. Hópurinn sem stendur að baki Samstöðu hefur unnið þrotlaust undanfarnar vikur og segir Lilja að það sé frábært að sjá uppskeru mikillar vinnu. „Þetta var alveg nauðsynlegt fyrir okkur,“ segir hún.

Í könnuninni voru aðeins rúmlega 52 prósent tilbúin til þess að gefa upp afstöðu sína og því ljóst að það er mikið laust fylgi. „Auðvitað gerir maður sér grein fyrir því að það eru margir óákveðnir. Það er ekkert gefið að þetta fylgi komi upp úr kjörkössunum. Ég held að aðstæður séu þannig í dag að svona nýtt afl fái meira fylgi en áður hefur verið,“ segir Lilja, sem segist telja að hið lausa fylgi sé líklega fylgi stjórnarflokkanna. „Margir af félögum mínum úr stjórnarflokkunum standi á hliðarlínunni og séu ekki tilbúnir til þess að styðja þetta stjórnmálaafl alveg strax,“ segir hún og segist sammála Birgi Guðmundssyni, stjórnmálafræðingi um það.

Þess má geta að Lilja Mósesdóttir verður gestur á Beinni línu hér á DV.is á sunnudag klukkan 15

Könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins: Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi

Lilja fengi fjórtán þingmenn



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?