ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Lilja fengi fjórtán þingmenn

Fengi fleiri en Vinstri grænir
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
08:04 › 10. febrúar 2012

Liðlega tuttugu prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 myndu kjósa nýjan flokk Lilju Mósesdóttur, Samstöðu.
Mjög margir vildu ekki taka afstöðu í könnuninni, alls tóku 52,9 prósent afstöðu, og því ljóst að laust fylgi er talsvert. Samstaða fengi ríflega fimmtung atkvæða og fjórtán þingmenn yrði gengið til kosninga nú. Ný fylgi fá samtals 30 prósent fylgi.

Björt framtíð, flokkur Besta flokksins og Guðmundar Steingrímssonar fengi 6,1 prósent stuðning eða fjóra þingmenn. Hægri-grænir, flokkur Guðmundar Franklíns Jónssonar fengju 0,9 prósent og fengi ekki mann á þing. Það gerir ekki heldur flokkur Guðbjörns Guðbjörnssonar, lýðfrelsisflokkurinn.

Yrði kosið nú fengi Samfylkingin átta þingmenn og Vinstri grænir aðeins fimm. Framsóknarmenn fengju átta þingmenn en Hreyfingin næði ekki manni á þing.

Könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins: Nýtt framboð Lilju Mósesdóttur með ríflega fimmtungs fylgi

Ranglega var sagt fyrr í morgun að Samfylkingin fengi tuttugu þingmenn, hið rétta er að samkvæmt Fréttablaðinu fengi hún átta.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?