Einstök álitaefni nýrrar stjórnarskrár verða borin undir þjóðina í atkvæðagreiðslu samhliða forsetakosningunum í sumar. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vinnur að þessu um þessar mundir en ekki er talið að náist að fullvinna stjórnarskrárfrumvarpið í tæka tíð fyrir kosningarnar.
Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Munu samfylkingarfólkið Álfheiður Ingadóttir og Róbert Marshall, varaformenn stjórnskipunar og eftirlitsnefndar telja að hægt verði að leggja fyrir mikilvægustu greinar nýrrar stjórnarskrár með atkvæðagreiðslu. Meðal þess sem þau telja að hægt verði að greiða atkvæði um eru mál sem varða forsetaembættið, samband ríkis og kirkju og eignarhald auðlinda.
Aðrir nefndarmeðlimir eru þó ekki sammála og segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefndinni, að tillögurnar þurfi mun meiri vinnu en svo, að hægt verði að greiða atkvæði um einstök atriði strax í júní.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
