Kex ehf., eignarhaldsfélag í eigu Eggerts Magnússonar, fyrrverandi formanns Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og stjórnarformanns West Ham, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Eggert er einna þekktastur fyrir tengsl sín við KSÍ og West Ham en hann var einnig forstjóri kexverksmiðjunnar Fróns á sínum tíma. Gjaldþrotið var auglýst í Lögbirtingablaðinu í vikunni.
Kex ehf. tengdist þó ekki kexframleiðslu heldur var tilgangur þess skilgreindur sem fasteignarekstur, kaup og sala, lánastarfsemi og annað slíkt. Félagið var stofnað árið 2005. Á rekstrarárum sínum skilaði félagið aðeins einu sinni ársreikningi, árið 2009. Þar kom fram að hlutafé félagsins væri 500 þúsund krónur og að engin starfsemi hefði verið í félaginu það árið. Kex var því ekki mjög aðsópsmikið félag.
Lítið hefur frést af Eggerti í fjölmiðlum eftir að Björgólfur Guðmundsson sá til þess að hann lét af störfum hjá West Ham árið 2007 eftir nokkuð dræmt gengi og rekstur liðsins. Eggert seldi þá 5 prósenta hlut sinn í knattspyrnuliðinu til Björgólfs.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
