Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri á Kvíabryggju, hefur kært Pál Winkel fangelsismálastjóra fyrir þjófnað og brot í opinberu starfi. Sjálfur var Geirmundur fangelsisstjóri á Kvíabryggju þar til í lok nóvember 2010, en var sagt upp störfum eftir að rannsókn leiddi í ljós að hann hafði um árabil misnotað reikninga fangelsisins í eigin þágu. Hann bíður þess að málið verði tekið fyrir dóm.
Geirmundur sakar Pál um að hafa selt líkamsræktartæki sem voru í fangelsinu að honum forspurðum og fer fram á að málið verði rannsakað. Geirmundur heldur því fram að margir munir í hans eigu hafi orðið eftir á Kvíabryggju eftir að honum var vikið frá störfum og gerir kröfu um að fá þá afhenta.
Páll Winkel fangelsismálastjóri hafði ekki heyrt af kærunni þegar blaðamaður bar hana undir hann. Það væri hins vegar rétt að hann hafi gefið fyrirmæli um að laus lyftingalóð í eigu fangelsanna yrðu seld, „… en ekki að selja einkaeigur starfsmanna enda eiga þær ekki að vera í fangelsum ríkisins,“ sagði hann við DV.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
