Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Fegurðardrottningin Fanney Lára Guðmundsdóttir hefur stefnt Ólafi Pétri Jakobssyni lýtalækni. Um er að ræða skaðabótamál og fyrirtaka í því var á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur síðastliðinn þriðjudag. Málinu var hins vegar frestað vegna sáttaumleitana, að sögn Gríms Sigurðssonar, lögmanns Ólafs. Ekki fengust upplýsingar um það hjá lögmönnum um hvað málið snýst eða hvers eðlis miski Fanneyjar Láru er. „Þetta er ekkert stórmál og vonandi tekst að leysa þetta eins og dómarinn bað okkur um að reyna,“ segir Grímur í samtali við DV.
Fanney Lára var kjörin ungfrú Reykjavík árið 2007 og Miss Scandinavia Baltic Sea, sama ár.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
