ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Ætlaði að myrða Barack Obama

Ungur maður frá Úsbekistan játar fyrir dómi
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:16 › 10. febrúar 2012
Ulugbek Kodirov ætlaði sér að ráða Barack Obama af dögum.

Ulugbek Kodirov ætlaði sér að ráða Barack Obama af dögum. Samsett mynd

Karlmaður frá Úsbekistan játaði sök fyrir dómi í Birmingham í Alabamaríki Bandaríkjanna í dag að hafa lagt á ráðin að myrða Barack Obama Bandaríkjaforseta. Ulugbek Kodirov, sem ætlaði að nota sjálfvirkan riffil við morðtilræðið, kvaðst vera að fylgja fyrirmælum íslamskra hryðjuverkamanna í heimalandinu.

Mun hann hafa ætlað að láta til skarar skríða gegn Obama þegar forsetinn héldi í kosningabaráttu síðar á þessu ári.
Með því að játa sök er hinn 22 ára gamli Úsbeki sagður hafa komist hjá lífstíðardómi en á samt sem áður yfir höfði sér 30 ára fangelsisdóm þó verjandi hans búist fastlega við fimmtán ára dómi.

Upp komst um plottið á síðasta ári þegar Kodirov fór að deila áformum sínum með vinum og kunningjum. Í júlí í fyrra mun hann hafa fengið hugljómun í mosku í Birmingham þar sem hann var að biðja ásamt félaga sínum Sagðist hann loks vita hvað hann þyrfti að gera fyrir trú sína. Nokkru síðar var Kodirov handtekinn að því er segir í frétt AP-fréttastofunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?