Áhugasamir bílasafnarar geta nú gert tilboð í bifreið sem eitt sinn var í eigu Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Bifreiðin, sem er af gerðinni Chrysler 300C, er 2005 árgerð og er venjulegt gangverð slíkra bifreiða á bandarískum markaði um 19 þúsund dalir, eða rúmar 2,3 milljónir króna. Sú staðreynd, að bifreiðin hafi verið í eigu Bandaríkjaforseta, hefur þó hleypt verðinu upp úr öllu valdi og vill eigandinn, Tim O'Boyle, fá eina milljón dala, jafnvirði 123 milljóna króna, fyrir bifreiðina sem er til sölu á uppboðsvefnum eBay.
Það er Lisa Czibor, þekktur bílasali í Chicago, sem selur bifreiðina fyrir hönd eigandans og segir hún að enginn vafi leiki á því að umrædd bifreið hafi verið í eigu Obama. Hann á að hafa selt hana í júlí árið 2007, um það leyti sem hann hóf baráttu sína fyrir forsetakosningarnar 2008.
Í staðinn keypti hann splunkunýja Ford Escape Hybrid-bifreið en skömmu áður hafði hann hvatt bílaframleiðendur til að leggja meiri áherslu á framleiðslu umhverfisvænna bíla. Chrysler-bifreiðin er með 5,7 lítra V8 vél sem skilar litlum 340 hestöflum.
Czibor segir í samtali við tímaritið Time að verðið sé langt í frá of hátt og bendir á máli sínu til stuðnings að gömul Peugeot-bifreið Mahmouds Ahmedinejad, forseta Írans, hafi selst á 2,35 milljónir dala, eða 290 milljónir króna, á síðasta ári. Peningurinn sem fékkst fyrir þá bifreið rann til góðgerðamála en í þessu tilviki er um einkaaðila að ræða sem fyrr segir.
Uppboðinu á eBay lýkur í dag, miðvikudag.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
