Foringinn fær sér kaffi og með því á góðri stundu með eiginkonu svæðisstjórans Alberts Forster í Berghof.
Nýjar ljósmyndir í lit eftir einkaljósmyndara Adolfs Hitler hafa nú birst á netinu. Þær sýna íbúð Hitlers, sumarhöll hans í Bæjaralandi og skrifstofu hans í höfuðborginni. Þær sýna glöggt hve íburðurinn í lífi hans var mikill og að ekkert var til sparað.
Ljósmyndarinn sem tók myndirnar heitir Hugo Jaeger og er talinn hafa tekið um 2.000 litmyndir af harðstjóranum og lífi hans, frá árinu 1936 til stríðsloka árið 1945. Hann geymdi myndirnar fyrstu árin eftir stríðið í skjalatösku.
Hermennirnir völdu koníakið
Sagan segir að eitt sinn hafi hann hitt bandaríska hermenn og hafi óttast að verða fangelsaður og kærður fyrir vörslu mynda af jafn hötuðum manni og Hitler var. Þegar hermennirnir opnuðu töskuna höfðu þeir hins vegar fyrst og fremst áhuga á forláta koníaksflösku sem þar var einnig. Þeir drukku koníakið með Jaeger en skeyttu ekki um myndirnar.
Síðar gróf Jaeger myndirnar í glerkrukkum skammt frá borginni München í Þýskalandi og vitjaði þeirra reglulega, til að athuga hvort þær hefðu varðveist. Árið 1955 gróf hann myndirnar upp og kom þeim fyrir í læstu bankahólfi í heimalandinu. Það var svo árið 1965 sem Jaeger seldi myndirnar tímaritinu Life. Þær myndir sem hér birtast hafa ekki áður birst opinberlega. Þær voru teknar á árunum 1937 til 1939 en það var árið 1939 sem markviss útrýming nasista á gyðingum hófst af fullum krafti.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 



„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
