Sigurjón Þ. Árnason var ekki viðstaddur aðalmeðferðin í morgun. Þar kom fram að hann á 566 milljónir króna í séreignarlífeyrissparnað í Landsbankanum.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson, verjandi Landsbankans í máli Sigurjóns Þ. Árnasonar gegn bankanum, krefst þess að kröfum bankastjórans fyrrverandi verði hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur og lögbanni á Landsbankann verði rift.
Aðalmeðferð í lífeyrissjóðsmáli Sigurjóns fór fram í dag en fyrri hluta þessarar fréttar má lesa á DV.is þar sem sagt er frá málflutningi lögmanns Sigurjóns.
Guðmundur Ingvi hóf mál sitt með að benda á að Landsbankinn væri því miður milliliður í þessu máli sem raun væri milli Sigurjóns og FME. Eftirlitið hafi tekið ákvörðun sem bankinn verður að fara eftir. En hann gæti ekki staðið og varið ákvarðanir og túlkanir FME sem málarekstur Sigurðar G. og Sigurjóns byggði að mestu leyti á. FME væri ekki til að svara fyrir það. Guðmundur Ingvi spurði hverslags glundroða það myndi skapa ef þegnar landsins færu í dómsmál gegn einkaaðilum sem fari eftir ákvörðunum eftirlitsaðila.
Landsbankinn varð að verða við beiðni FME
Vörn Guðmundar byggði helst á því að það væri ákvörðun FME að þessari sparnaðarleið sem Sigurjón naut skyldi lokað. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli valdheimildar sem FME hafi og hafi ekki verið hnekkt, felld úr gildi eða breytt með nokkru móti. Það hafi verið skylda Landsbankans að fylgja þessum ákvörðunum.
FME hafi talið þessa sparnaðarleið vera ólöglega og því bankanum skylt að gera úrbætur á og það væri verið að gera. Guðmundur benti á að FME gæti beitt bankann dagssektum líkt og hótað hefði verið og jafnvel svipt bankann starfsleyfi sínu fyrir að fara ekki að þessu. Hann sagði ástæður aðgerða FME þó aðeins að litlu leyti raktar af Sigurði G. Guðjónssyni. Hér væri meira að baki en bara samspil reglna og samninga.
Sigurjón fékk hraðflutning á 108 milljónum
Fór Guðmundur yfir það sem hann kallaði umdeilanlegar ráðstafnir Sigurjóns á sparnaðinum og vísaði meðal annars til skýrslu sem Íslenski lífeyrissjóðurinn lét vinna fyrir sig þar sem ýmislegt misjafnt kom í ljós.
Þar segi að Sigurjón hafi fengið flutning með hraði á 108 milljóna króna séreignarlífeyris síns í apríl 2008. Flutningur sem gerður var 4. apríl, samdægurs, yfir á verðtryggða lífeyrisbók í Landsbankanum. Samkvæmt verklagsreglum Íslenska lífeyrissjóðsins hafi þess flutningur átt að eiga sér stað mánuði síðar. „Hann fékk hann á einum degi.“
Síðan vitnaði Guðmundur í bréf sem FME sendi Landsbankanum þar sem rökstutt var af hverju loka ætti þessari leið sem Sigurjón var í.
Áskrifendur DV gefa haldið áfram að lesa um málið með því að skrá sig inn og smella á „meira“ hér fyrir neðan:
Sjá einnig:
Atlaga að Landsbankastjóra og myrkraverk stjórnvalda


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
