ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Björgólfur krefur forseta Alþingis svara

Er rannsóknarnefndin enn að störfum?
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:38 › 9. janúar 2012
Björgólfur hefur gert margar athugasemdir við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en ekki fengið þær birtar.

Björgólfur hefur gert margar athugasemdir við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en ekki fengið þær birtar.

Björgólfur Thor Björgólfsson sendi forseta Alþingis og nefndarmönnum í rannsóknarnefnd Alþingis bréf fyrir mánuði síðan. Í bréfinu óskar hann svara um störf nefndarinnar frá apríl 2010.

„Áður hafði ég raunar staðið í þeirri trú að nefndin hefði látið af störfum í þeim mánuði, um leið og skýrsla hennar kom út. Hins vegar hafa mér þrívegis borist upplýsingar sem benda til þess að nefndin hafi veitt fyrirspyrjendum nánari skýringar á skýrslu sinni. Það er að sjálfsögðu fagnaðarefni en um leið er eðlileg krafa að skýrsluhöfundar taki tillit til þeirra athugasemda sem komið hafa fram, til dæmis hér á vefsíðu minni. Þá ítreka ég þá ósk mína að athugasemdir mínar verði birtar á vef Alþingis, þar sem rannsóknarskýrsluna sjálfa er að finna,“ skrifar kaupsýslumaðurinn á vef sínum BTB.is.

Björgólfur bendir á að svo virðist sem Sigrún Davíðsdóttir hjá RÚV og breska blaðið Observer hafi fengið nánari útskýringar á efni skýrslu nefndarinnar við umfjöllun þeirra um Björgólf og viðskipti hans.

Þykir Björgólfi sjálfgefið, þar sem rannsóknarnefndin virðist enn vera að störfum, að hún taki tillit til þeirra athugasemda og leiðréttinga sem hann hafi gert við skýrsluna.

Björgólfur segir að hann hafi ekki fengið svör við fyrirspurnum sínum frá rannsóknarnefndinni eða forseta Alþingis en býst við þeim fljótlega.

Hér fyrir neðan má lesa bréf Björgólfs til þessara aðila.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?