ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Sprengjur Bandaríkjamanna valda fæðingargöllum og krabbameini

Krabbamein meðal barna í Fallujah eykst tólffalt
12:20 › 8. janúar 2012
Vanskapað barn í Fallujah.

Vanskapað barn í Fallujah.

Sprengjur Bandaríkjamanna hafa valdið óhugnalegri aukningu í fæðingargöllum og krabbameini meðal íbúa Fallujah í Írak, samkvæmt læknum þar í landi.

Bandaríkjamenn vörpuðu miklu magni af sprengjum á borgina árið 2004 en þeir notuðu meðal annars sprengjur sem innihéldu hvítt fosfór og úraníum.

Rannsókn var gerð á hársýnum foreldra sem eiga vansköpuð börn þar og úraníum fannst í mörgum þeirra, efni sem er þekkt fyrir að valda krabbameini.

Tölurnar eru sláandi en krabbamein meðal barna í borginni hefur aukist tólffalt síðan árið 2004. Tíðni fæðingargalla er 14,7% en til samanburðar var tíðnin 1-2% eftir kjarnorkusprengingarnar í Hiroshima og Nagasaki.

Tilteknir fæðingargallar í borginni eru m.a. ílangir hausar og óvenjulega stórir líkamshlutar og til er dæmi af barni með stakt auga í miðju andlits. Meirihluti barnanna deyr stuttu eftir fæðingu.

Afi eins vanskapaðs barns sagði í samtali við Al Jazeera: „Af hverju er ríkisstjórnin ekki að rannsaka þetta? Vestrænir fjölmiðlar virðast hafa áhuga en hvorki fjölmiðlar né ríkisstjórnin hér gera það. Af hverju ekki?“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.