Samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í hinu virta tímariti British Medical Journal byrjar hnignun heilans um 45 ára aldur hjá mannfólkinu. Samkvæmt rannsókninni sem framkvæmd var af vísindamönnum við University Collage London verður rúmlega þriggja prósenta (3,6 prósent) hnignun á heilastarfsemi eftir að bæði konur og karlar ná 45 ára aldri.
Vísindamennirnir mátu minni, orðaforða og skilning 7000 manna og kvenna á aldrinum 45-70 ára á tíu ára tímabili. Það sem er einkar áhugavert við rannsóknina er að hingað til hefur verið talið að slík hnignun hefðist ekki fyrr en um sextugt.
Rannsóknin er talin geta aðstoðað við greiningu á heilabilun, en aðrar rannsóknir hafa sýnt það ef lyfjagjöf hefst um leið og einkenni heilabilunar koma fram er auðveldara að eiga við hana. Alsheimer samtökin í Bretlandi segja þessa rannsókn gefa von til þess að skila heilabilun og minnisglöp betur.
Frétt BBC um þessa merkilegu rannsókn má lesa hér: Brain function can start declining 'as early as age 45'


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis
Zuckerberg samdi einn við Instagram
Facebook kaupir Instagram á milljarð dala
Milljónir keyptu sér iPad 3
Facebook meira ávanabindandi en áfengi og tóbak
