Kodak er eitt þekktasta vörumerki í heimi en síðustu ár hafa reynst fyrirtækinu erfið. Mynd: Reuters
Ljósmyndarisinn fyrrverandi Kodak rambar nú á barmi gjaldþrots og er óttast mjög um framtíð þessa 131 árs gamla stórveldis.
Forsvarsmenn Eastman Kodak Company vinna nú dag og nótt að því að reyna að forðast greiðslustöðvun en samkvæmt frétt Wall Street Journal eru björgunaraðgerðir fyrirtækisins í hálfgerðri sjálfheldu.
Kodak reynir nefnilega að selja fjölmörg einkaleyfi sín til að afla fjár en á sama tíma þora fjárfestar ekki að kaupa þau vegna þess að þeir hafa áhyggjur af yfirvofandi gjaldþroti fyrirtækisins.
Til að auka á vandræði forsvarsmanna fyrirtækisins þá hafa þeir verið varaðir við því þeim verði sparkað úr Kauphöll New York enda hefur hlutabréfaverð Kodak lokað á undir einum dali síðustu 30 dagana í röð.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti
Sendiráðsmilljónir feðganna áfram í frosti
Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum
Seldi í Kaupþingi fyrir 4,6 milljarða
Amazon í vanda: Sagt hafa svikið undan skatti
