ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Tugir frjósa í hel

Mannskæð frostharka í Úkraínu og víðar í Austur-Evrópu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:57 › 31. janúar 2012
Eldiviður. Íbúar finna allt sem brennur til að hita heimili sín og halda lífi.

Eldiviður. Íbúar finna allt sem brennur til að hita heimili sín og halda lífi. Mynd: Reuters

Minnst þrjátíu manns hafa látið lífið í miklum frosthörkum í Úkraínu síðustu daga. Flestir hinna látnu eru heimilislausir og aðrir sem minna mega sín.

Að minnsta kosti 60 manns hafa látið lífið í Austur-Evrópu síðustu sjö daga og af þeim 30 sem vitað er um í Úkraínu fundust 21 líkanna frosin úti á götu. Fimm þeirra létust á sjúkrahúsi eftir ofkælingu og fjórir á heimilum sínum.

540 manns hafa þurft að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi vegna ofkælingar og fylgikvilla hennar. Í suðurhluta landsins eru samgöngur lamaðar sökum mikillar ofankomu og flughálku á vegum úti. Frost hefur mælst 23 gráður í Kíev og víðar í Úkraínu og þurft hefur að loka fjölmörgum skólum og hjúkrunarheimilum.
Yfirvöld hafa þurft að bregðast við með að reisa upphituð tjöld fyrir þá sem eiga í engin hús að vernda.

Í Póllandi hafa minnst fimm frosið í hel síðastliðinn sólarhring og er tala látinna þar komin upp í 15 síðastliðna fjóra daga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?