Joe Green verður þekktur í sögubókum framtíðarinnar fyrir að vera einn hlýðnasti sonur tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Hann var herbergisfélagi Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook, og þegar að Zuckerberg ætlaði að gera Facebook að stórveldi afþakkaði Joe tilboð hans um að vera þátttakandi.
Faðir Joe var þessu mótfallinn enda höfðu þeir félagarnir, Joe og Mark, þegar lent í vandræðum innan Harvard háskólans og nánast verið reknir úr skólanum fyrir vafasamar heimasíður. Þá höfðu þeir stofnað síðuna „FaceMash“ og voru í miklum vandræðum.
Þegar Zuckerberg bauð Joe hluta í framtíð Facebook var björt framtíð samskiptasíðunnar þó ekki fyrirséð og því afþakkaði Joe boðið . Þess í stað ákvað hann að taka stefnuna á stjórnmálaframa og aðstoðaði John Kerry við forsetaframboð sitt árið 2004. Kerry varð ekki forseti og Joe fann sig ekki í stjórnmálaheiminum.
En Facebook var ekki langt undan og nú starfar hann fyrir góðgerðarhluta Facebook. Eini munurinn er sá að hann á ekki 17.5 milljarða bandaríkja dollara en það væri hlutur hans hefði hann tekið tilboði Mark.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
