Fyrrverandi bankastjóri Royal Bank of Scotland, Fred Goodwin, hefur verið sviptur riddaratign sinni af Elísabetu Englandsdrottningu. Drottningin fór þar að ráðum ríkisstjórnarinnar og David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, en gagnrýni á Goodwin hefur verið mikil vegna þáttar hans í því þegar Royal Bank of Scotland stóð nálægt hruni árið 2008.
Goodwin verður því ekki lengur ávarpaður sem sir, en hann var aðlaður árið 2004. Hingað til hafa aðeins dæmdir glæpamenn verið sviptir slíkum titlum.
DV hefur fjallað um það hvort hægt sé að svipta einstaklinga íslenskum fálkaorðum. Reglan kveður á um að stórmeistari, sem er forseti landsins, geti svipt orðuþega orðunni. Um þetta er kveðið í 13. grein forsetabréfs. Þar stendur: „Stórmeistari getur, að ráði orðunefndar, svipt hvern þann, sem hlotið hefur orðuna en síðar gerst sekur um misferli, rétti til að bera hana.“
Tengdar fréttir
Má svipta Sigurð Einarsson fálkaorðunni


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
