ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Makinn skoðar einkamál þín á netinu

Ef þú hefur eitthvað að fela eru líkur á að það komist upp
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:01 › 31. janúar 2012
Makinn snuðrar á netinu. Ef þú hefur eitthvað að fela, eru líkur á að maki þinn komist að því.

Makinn snuðrar á netinu. Ef þú hefur eitthvað að fela, eru líkur á að maki þinn komist að því. photos.com

  • Það getur tekið á að komast að framhjáhaldi makans.

    Það getur tekið á að komast að framhjáhaldi makans.photos.com

Ef þú ert með Facebook-síðu og tölvupóst eins og nánast hvert mannsbarn hér á landi þá eru líkur á að maki þinn hafi stolist til að skoða þín einkamál að þér fjarverandi.

Þetta kemur fram í nýrri breskri rannsókn sem leiðir í ljós að einn af hverjum tíu breskum karlmönnum hefur stolist inn á persónulegar síður makans til að njósna. Sex prósent kvenna höfðu gert slíkt hið sama. Ólíklegt verður að teljast að Íslendingar séu frábrugðnir Bretum að þessu leyti.

Í mörgum tilfellum reyndist makanum auðvelt að komast í upplýsingarnar því 76 prósent þeirra sem rannsóknin náði til notuðu sama lykilorðið fyrir alla sínar síður á netinu. Tuttugu prósent breskra netnotenda nota fornafn móður sinnar í lykilorðum.

Rannsóknin náði til þúsund breskra einstaklinga 18 ára og eldri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?