Lára Margrét Ragnarsdóttur fyrrverandi alþingismaður er látin. Lára Margrét var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1991-2003 fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og var varaþingmaður á árunum 2003-2006. Eftir að hún lét af störfum á Alþingi starfaði hún sem varaforseti hjá Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins í Strassburg og síðar hjá utanríkisráðuneytinu.
Lára Margrét fæddist í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1967, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1977, stundaði framhaldsnám við Verslunarháskólann í Björgvin frá 1979 og lauk þaðan prófum 1981.
Lára Margrét var skrifstofustjóri hjá Læknasamtökunum 1968-72, ráðgjafi í sjúkrahússtjórn hjá Arthur D. Little í Boston í Bandaríkjunum 1982-83, forstöðumaður áætlana- og hagdeildar Ríkisspítalanna 1983-85, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1985-89, forstöðumaður þróunardeildar Ríkisspítalanna 1989-91 og hefur verið alþm. Reykvíkinga frá 1991.
Lára Margrét hefur setið í heilbrigðisnefnd Sjálfstæðisflokksins frá 1983 og formaður þar 1990-92, í stjórn Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki 1986-89 og frá 1990, stjórnarformaður þar 1991-96, í aðaðlstjórn Sólheima frá 1990, í stjórn Íslensku óperunnar frá 1987, í stjórn Íslensk-ameríska félagsins frá 1987 og formaður 1991-96, formaður Skálholtsnefndar 1991-93, í Íslandsdeild Evrópuráðsins frá 1991 og formaður 1995, formaður fastanefndar Evrópuráðsins um almannatengsl og tengsl milli þjóðþinga frá 1994, sat þing Vestur-Evrópusambandsins 1995 og formaður Íslandsdeildar þess, fyrsti íslenski formaður þar í einni fastanefndanna og hefur setið í ýmsum opinberum nefndum. Lára Margrét er Eisenhower fellow frá 1990.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
