ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Búa til iPhone við ömurlegar aðstæður

Apple skilar methagnaði á meðan
07:37 › 31. janúar 2012
Þessir starfsmenn starfa í verksmiðju Foxconn í Chengdu. Þeir búa á einskonar heimavist við verksmiðjuna.

Þessir starfsmenn starfa í verksmiðju Foxconn í Chengdu. Þeir búa á einskonar heimavist við verksmiðjuna.

„Velferð starfsmanna er eitthvað sem kemur forsvarsmönnum Apple ekkert við. Það eina sem þeir hugsa um er að auka framleiðslugetu og minnka framleiðslukostnað.“ Þetta segir Kínverjinn Li Mingqi, sem þar til í apríl á síðasta ári starfaði í verksmiðju Foxconn í borginni Chengdu í Kína. Fyrirtækið sér meðal annars um að setja saman og framleiða vörur fyrir Apple, þar á meðal iPad-spjaldtölvurnar og iPhone-snjallsímanna.

Bandaríska blaðið New York Times birti á dögunum ítarlega úttekt um aðbúnað starfsfólks í verksmiðjum sem framleiða vörur fyrir Apple í Kína og er ljóst að þar er víða pottur brotinn. Greinin er meðal annars byggð á samtölum við núverandi og fyrrverandi starfsmenn í verksmiðjum í Kína, fyrrverandi yfirmenn hjá Apple og samtökum sem berjast fyrir auknum réttindum starfsfólks í verksmiðjunum.

Á sama tíma skilar Apple methagnaði, en í síðustu viku tilkynntu forsvarsmenn fyrirtækisins að hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi síðasta árs hefði numið 13 milljörðum dala.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?