Karlmaður á fimmtugsaldri, í Virginiu í Bandaríkjunum, sem hefur verið í langvarandi forræðisbaráttu yfir dætrum sínum, tók sitt eigið líf og dætra sinna í gærkvöldi. Maðurinn dældi koltvísýring inn í húsið þar sem hann og tvíburadætur hans, 3 ára gamlar, dvöldu. Hann mun einnig hafa skorið telpurnar og sjálfan sig á háls, en lögregla veit þó ekki hvort varð þeim að bana; koltvísýringurinn eða skurðurinn.
Móðir telpnanna hringdi í örvæntingu sinni á lögreglu þegar hún kom að heimili mannsins. Þegar lögregla kom á vettvang lá hún grátandi í innkeyrslunni og endurtók í sífellu: „börnin mín eru dáin“.
Áður en lögregla gat farið inn á heimilið varð að brjóta nokkra glugga í húsinu til að loftræsta það. Maðurinn hafði fest slöngu við útblástursrör á bíl sínum og leitt slönguna inn um glugga.
Hjónin höfðu skilið ári fyrr og sagði maðurinn að móðir telpnanna hefði yfirgefið þau. Konan segir sjálf að einkennileg og ofstækisfull hegðun mannsins hafi rekið hana að heiman. Hún hafði forræði yfir dætrum sínum en þær voru yfir helgi hjá föður sínum.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
