Ragna með dóttur sinni, Ellu Dís. Ragna segir að samkvæmt lögfræðingi sínum séu bresk barnaverndaryfirvöld að skoða hvort hún sé haldin Münchausen by proxy sjúkdómi.
„Mig langar til að koma heim en ég þori ekki með Ellu Dís heim,“segir Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar. „Við erum í stríði núna. Þeir eru búnir að lýsa yfir stríði og ég sé þetta sem stríð,“ bætir hún við. Með „þeir“ á hún við yfirvöld og þá barnalækna sem annast hafa Ellu Dís. Ragna er stödd í Bretlandi, en yfirvöld þar í landi sviptu hana forræðinu yfir dóttur sinni að hluta í síðustu viku.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem Ragna fær frá lögfræðingi sínum í Bretlandi eru barnaverndaryfirvöld að afla sér upplýsinga um hvort hún gæti verið með sjúkdóminn Münchausen by proxy. Sem gengur út á að foreldri ýkir, skáldar, eða veldur veikindum barns síns. Aðspurð hvers vegna hún telji það vera til skoðunar segir Ragna aðallega tvo þætti skýra það.
„Af því Ella Dís var ósjúkdómsgreind í svo langan tíma og hrörnaði svo mjög hratt. Svo héldu þau fyrst að ég hefði verið í læknisfræði því ég er mjög vel að mér um þetta allt. Þau telja að af því ég er svo vel að mér í læknisfræði hafi ég gert Ellu Dís veika.“
Meira »

















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
