„Þetta er bara sanngjarnt,“ segir Bill Gates um fyrirhugaðar skattahækkanir á þá ríku í Bandaríkjunum, en í ræðu forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, síðastliðinn þriðjudag ræddi hann hugmyndir sínar um skattahækkanir á þá einstaklinga sem hafa mestu tekjurnar í Bandaríkjunum. Ræðan fjallaði um stöðu bandaríska ríkisins, eða eins og hún er kölluð„State of the Union“.
Í meðfylgandi myndbandi hér fyrir ofan má sjá Obama flytja þann hluta ræðunnar sem snýr að skattahækkunum, en hann hefur langt til að skattar verði hækkaðir á þá sem græða mest þar sem efnamiklir Bandaríkjamenn greiða yfirleitt lægri skatta en láglaunafólk. Ástæðan er gríðarlegur skattaafsláttur. Forsetinn hefur mætt mikilli andstöðu á meðal Repúblikana á þingi við þær hugmyndir að hækka skatta hjá heimilum þar sem tekjurnar nema einni milljón dollara, króna eða meira á ári, sem jafngildir 118 milljónum íslenskra króna.
Þessar hugmyndir Obama hafa þó slegið í gegn hjá efnalitlum einstaklingum en þeir efnameiri hafa mótmælt harðlega. Það eru þó undantekningar, en milljarðamæringurinn Warren Buffet hefur meðal annars lagt til að skattar verði hækkaðir. Buffet skrifaði grein í bandarísk dagblöð í sumar þar sem hann bað forsetann vinsamlegast að hækka skattana hjá sér þar sem Buffett greiddi hlutfallslega minni skatta en meðal launamaður. Hann telur að ekki eigi að undanskilja arðgreiðslur og fjármagnstekjur þegar efnaðir einstaklingar eru skattlagðir. Hann hefur sagt að hann sjálfur greiði lægri skatta heldur en ritarinn hans og bent á ósanngirni í þeim efnum.
Skatturinn hefur verið kallaður í höfuðið á Warren Buffet og nú hefur annar milljarðamæringur, tölvurisinn Bill Gates sagst vera sammála og segir „Þetta er bara sanngjarnt“.
Hann segir að þar sem að ríkissjóður Bandaríkjanna standi vægast sagt illa sé nauðsynlegt að hækka skatta. Það sé hinsvegar ósanngjarnt að hækka þá hjá þeim lægst launuðu og segir það vera rétt að gera það hjá þeim efnameiri.
Gates var þá spurður hvort hann teldi þetta vera skoðun sína og aðeins örfárra annarra líkt og Buffet og hann svarar: „Ég vona að við getum lagað fjárlagahallann með sameiginlegri fórn þar sem allir telja sig vera að skila sínu. Og á þessu augnabliki tel ég að fólk eins og ég sé ekki að greiða eins mikið og það gæti gert.“
Viðtalið við Bill Gates má sjá hér fyrir neðan. Hluta úr ræðu Barack Obama má sjá hér að ofan.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
