ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Rúmlega helmingur óttast Tímalínuna

Tæp tíu prósent eru hlynnt henni
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:03 › 30. janúar 2012

Tímalínan á samskiptasíðunni Facebook nýtur aðeins stuðnings tæplega tíu prósent notenda miðilsins, að því er fram kemur í nýrri könnun.

Það er breska dagblaðið The Daily Mail sem greinir frá þessari könnun. Tímalínan verður innan skamms skylda hjá notendum samskiptasíðunnar. Notendur hafa hingað til fengið að velja hvort þeir nota Tímalínuna en þeir sem ekki hafa virkjað hana munu fá tilkynningu frá Facebook um að hún hafi verið virkjuð og hafa þeir sjö daga til þess að yfirfara hana áður en hún verður opinberuð.
Tímalínan gerir það að verkum að gamlar stöðufærslur og myndir, sem margir kæra sig ekki um að sjá aftur eða að hafa til sýnis, verða sýnilegar á ný.

Eru því Facebook-notendur hvattir til að yfirfara Tímalínuna og eyða því eða fela sem þeir vilja ekki að sé til sýnis þar. Þá þykir Tímalína uppljóstra hve mikið Facebook-fyrirtækið veit í raun um notendur sína.
Könnunin sem breska dagblaðið vitnar í náði yfir fjögur þúsund Facebook-notendur en þar kemur fram að aðeins átta prósent séu hlynntir Tímalínunni.

51 prósent aðspurðra sögðust hafa áhyggjur af Tímalínunni en aðeins átta prósent sögðust vera að venjast nýjunginni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?