Heimilislausum manni frá Albuquerque í Nýju – Mexíkó í Bandaríkjunum var bjargað eftir að hafa verið fastur í leðju í þrjá daga síðasta laugardag.
Maðurinn, sem var fastur í þykkri leðju nálægt Rio Grande ánni í Albuquerque, var bjargað síðasta laugardag eftir að nemendur úr framhaldsskóla heyrðu óp hans þegar þau voru stödd í vetfangsferð á vegum skólans í nágrenninu. Eftir að tilkynning barst frá nemendunum var manninum bjargað af lögreglu og slökkviliði, sem notuðust við trissu til hífa manninn upp úr leðjunni.
Maðurinn, sem ber nafnið Clayton Senn, hafði búið tímabundið nálægt Rio Grande ánni og reyndist vera eftirlýstur fyrir vopnaða árás. Farið var með Senn á spítala og verður hann færður til lögreglu eftir að spítalavist hans líkur.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
