Þrír kanadískir ríkisborgarar af afgönskum uppruna voru í gær dæmd fyrir svokölluð „heiðursmorð“ gegn fjórum meðlimum úr fjölskyldu þeirra. Kaupsýslumaðurinn Mohammad Shafia, seinni kona hans og elsti sonur voru fundin sek um að hafa drekkt þremur dætrum hjónanna og fyrrum eiginkonu Mohammad.
Þau voru öll dæmd til 25 ára fangelsisvistar með enga möguleika á reynslulausn. Lík dætrana, sem voru á aldrinum 19, 17 og 13 ára, fundust í yfirgefnum bíl við Kingston í Kanada í júní árið 2009. Í bílnum var einnig hin 53 ára fyrrum eiginkona Mohammad.
Áður en þau ákærðu voru leidd í burtu í handjárnum lýstu þau öll yfir sakleysi sínu þrátt fyrir upptökur sem sannaði greinilega sekt þeirra. „Ég er ekki morðingi, ég er móðir“ sagði eiginkona Mohammad Shafia við litla hrifningu dómarans í málinu sem sagði að megin ástæðan á baki morðunum á þessum saklausu einstaklingum væri að þeir hefðu ekki hegðað sér samkvæmt brenglaðri afstöðu á heiðri, þar sem heiður væri tengdur kúgun kvenna.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
