Ung móðir í New York situr nú gæsluvarðhaldi sökuð um að hafa skilið dætur sínar eftir aleinar á götu í Brooklyn.
Konan, Dalisha Adams 26 ára gömul, var handtekinn á sunnudagkvöldið eftir að lögregla gat borið kennsl á dætur hennar, en þær reyndust þegar vera á skrá félagsmálayfirvalda þar í borg. Eftir það reyndist auðvelt að finna konuna.
Stúlkurnar sem eru þriggja og fimm ára gamlar. Þær heita Domanie og Dioni og voru skildar eftir fyrir utan matvöruverslun klukkan tæplega þrjú á sunnudagseftirmiðdag. Þær voru hlýlega klæddar og ríghéldu í nokkrar bleyjur. Þær voru dauðhræddar og hágrátandi þegar eldri hjón höfðu afskipti af þeim og spurðu hvers vegna þær væru einar á ferð. Hjónin kölluðu til lögreglunnar og gátu telpurnar sagt þeim hvað mamma þeirra heitir, en þó aðeins fornafnið. Þær höfðu þó ekki hugmynd um það hvar þær ættu heima.
Móðir þeirra hefur sem áður sagði verið handtekinn og situr í gæsluvarðhaldi. Telpurnar eru nú á forræði barnaverndaryfirvalda en dagblaðið New York Post hafði upp á nágrönnum telpnanna. Nágrannarnir voru tæplegast hrifnir af Dalishu og sögðu að hún væri bæði skapstór og að henni lægi oft hátt rómur. Hún ætti það til að garga á telpurnar heilu dagana og stundum byrjuðu öskrin snemma morguns. „Ég hef heyrt hana blóta litla barninu. Ég vona að hún sjái þær aldrei aftur. Þetta er ekki sanngjarnt gagnvart þeim,“ segir einn nágranni og annar segir „Hún talar illa til dætra sinna. Hún segist ætla að berja þær eða sparka í þær.“
Á sunnudaginn heyrðu nágrannar í konunni garga og öskra á stelpurnar. Þá kallaði hún „Hættið að gráta. Nú losa ég mig við ykkur!“ og virðist henni hafa verið full alvara.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
